Song Information | |
Music: Ásta Björg Björgvinsdóttir | |
Lyrics: Bergrún Íris Sævarsdóttir |
Hér inni er svo notalegt en úti dimmir fljótt
Ég ætt’að fara heim, áður en kvöld verður að nótt
Ekki horfa svona á mig veist ég stenst ei augun þín
Nú er tími kominn til að fara heim
Eftir eitt lag, kannski eitt enn
Bara smástund, sestu mér hjá
Hvíslað’ að mér, hversvegna þú
Vilt hafa mig hér
Svo þegar þú, færir þig nær
Á tvöföldum hraða hjarta mitt slær
Ég fiðrildi fæ í magann á mér
Og roðn’oní tær
Lífið gæti verið ljúft ef ég lifði því með þér
Menn segja’ð best sé heima en ég vil frekar vera hér
Ekki viss um hvað er rétt og rangt, er alveg sam’um það
En ég veit þó vel ég ætt’að fara heim
Eftir eitt lag, kannski eitt enn
Bara smástund, sestu mér hjá
Hvíslað’ að mér, hversvegna þú
Vilt hafa mig hér
Svo þegar þú, færir þig nær
Á tvöföldum hraða hjarta mitt slær
Ég fiðrildi fæ í magann á mér
Og roðn’oní tær
Nóttin leið og út’er orðið bjart ég er ennþá hér
Ég gleymdi mér með þér en nú fer ég heim
Eftir eitt lag, kannski eitt enn
Bara smástund, sestu mér hjá
Hvíslað’ að mér, hversvegna þú
Vilt hafa mig hér
Svo þegar þú, færir þig nær
Á tvöföldum hraða hjarta mitt slær
Ég fiðrildi fæ í magann á mér
Og roðn’oní tær
Eftir eitt lag, kannski eitt enn
Bara smástund, sestu mér hjá
Leave a Reply